Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Hvolsvöllur - 31  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Forvarnir  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Hvolsvöllur - 31 - Helstu verkefni   
6.3.2007

Vikan 26. feb.- 5. mars 2007

Í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli voru 16 ökumenn stöðvaðir vegna hraðaksturs síðast liðna viku. 2 ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um ölvun við akstur og eru mál þeirra í rannsókn.

 

3 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á tímabilinu, Bílvelta var á Landvegi 26. febrúar, þar var ökumaður einn í bílnum og voru meiðsli minniháttar.

 

Óhapp varð við Kvísker í Öræfum þann 4. mars á milli mjólkurbíls og flutningabíls, en speglar bifreiðanna rákust saman er þeir mættust. Segja má að þarna hafi lukkan snúist þeim í vil, því ekki vantaði á nema nokkra sentimetra að bifreiðarnar myndu skella saman.

 

Umferðarslys var á Suðurlandsvegi, þanng 4. mars við bæinn Sólheima, skammt vestan við Hvolsvöll, en þar rákust saman fólksbifreið og sjúkrabifreið. Tveir voru í fólksbifreiðinni og slasaðist ökumaður hennar töluvert. Farþegi slapp ómeiddur. Í sjúkrabílnum voru tveir sjúkraflutningamenn, sjúklingur og einn farþegi. Sjúkraflutningsmennirnir sluppu með minniháttarmeiðsli, en farþeginn skarst á fæti. Sjúklingurinn slapp ómeiddur.

Tildrög slyssins eru þau að bifreiðunum var ekið í gagnstæða átt, en skömmu áður en þær mættust var fólksbifreiðinni skyndilega ekið fyrir sjúkrabifreiðina með áðurgreindum afleiðingum.

 

Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir vitnum að slysinu og eru þau beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 488 4110.

 

Í síðustu viku voru lögreglumenn kallaðir að heimili í Rangárþingi ytra vegna ölvunarástands og hótanna. Þar sem vitað var um skotvopn á staðnum var ákveðið að kalla eftir aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra, til að tryggja öryggi á vettvangi.

Maðurinn var handtekinn mótþróalaust og sýndi hann lögreglu fulla samvinnu og kurteisi.

 


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
kona var í fyrsta skipti skipuð aðstoðaryfirlögregluþjónn þann 7. júní 2000 ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur