| Á sviði löggæslunnar hefur verið fremur rólegt í liðinni viku og áramótin gengu yfir með miklum rólegheitum þrátt fyrir gríðarlegar flugeldasprengingar í umdæminu. Tveir áramótadansleikir fóru fram á nýársnótt annar á Hellu en hinn á Hvolsvelli. Samkomur þessar voru vel sóttar og fóru vel fram en stóðu nokkuð langt fram á nýársdagsmorgun. Brennur voru vel sóttar á gamárskvöld m.a. á Hvolsvelli, í Þykkvabæ og á Hellu en þar eiga félagar björgunarsveita á Hellu og Hvolsvelli stóran þátt hvað vel tókst til í samvinnu við sveitarfélögin og starfsmenn þeirra. Á vegum beggja björgunarsveitanna voru veglegar flugeldasýningar við brennurnar.
Eitt umferðarslys var tilkynnt til lögreglunar í liðinni viku en daginn fyrir gamársdag þá varð ungur drengur á vélsleða fyrir því að að missa stjórn á vélsleða sem hann ók og keyra utan í tré móts við bæinn Stóra-Klofa í Rangárþingi ytra, óttast var að drengurinn væri fótbrotinn eftir áreksturinn. Drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið í sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hans. Drengurinn hafði þarna verið á ferð með eldri frænda sínum sem var farþegi á vélsleðanum þegar slysið gerðist. Vélsleðinn er óskráður, án skráningarnúmera og ökumaðurinn sem slasaðist réttindalaus sökum ungs aldurs.
Þegar íbúðar Hvolsvallarkauptúns komu á fætur að morgni gamársdags brá mörgum hverjum illilega því á upplýstu ártali sem er efst á brún Hvolsfjalls blasti við fólki ártalið 2001 í stað 2004. Þegar betur var að gáð kom í ljós að einhverjir óvandaðir einstaklingar höfðu gert það að leik sínum aðfaranótt gamársdags að skera á ljósaslöngur sem myndar ártalið 2004 og skemma stóran hluta af ljósabúnaðinum. Ártalið hefur verið í brún Hvolsfjalls í áraraðir og er af því mikill sómi og staðarbrýði þar sem það er upplýst frá byrjun jólaföstu og fram yfir þrettándann ár hvert en ártalið breytis sjálfvirkt á miðnætti um áramót. Félagar í Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli sem eiga veg og vanda að ártalinu brugðust skjótt við og lagfærðu ártalið til fyrra horfs með umtalsverði vinnu og kostnaði. Ekki er vitað með vissu hvaða skemmdarvargar voru þarna á ferð og biður lögreglan alla þá sem búa yfir einhverri vitneskju um skemmdarverkin að hafa samband í síma lögreglunnar 488 4111 þar sem málið er í rannsókn.
Um áramótin kom nýr lögreglumaður til starfa við embætti Sýslumannsins á Hvolsvelli en sá heitir Ágúst Rafn Einarsson en hann útskrifaðist frá Lögregluskóla ríkisins í desember síðastliðnum. Um þessar mundir eru því starfandi fimm lögreglumenn við embættið en reiknað er með að sjötti lögreglumaðurinn komi til starfa á næstu vikum líkt og var i byrjun árs 2004 og til loka sumars. |