| Í liðinni viku var óvenju rólegt yfir mannlífi öllu og má segja að slíkt hljóti að teljast til gleðifrétta. Samkomukomuhald liðinnar helgar fór vel fram í alla staði en um þessar mundir eru veitingastaðir að bjóða upp á árviss jólahlaðborð sem víðast hvar eru vel sótt.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur og er það með allra minnsta móti en akstursskilyrði hafa verið þannig að hálka hefur verið á nánast öllum vegum umdæmisins og vonandi er það til marks um að ökumenn hafi tamið sér að fara eftir settum reglum hvað umferðarhraða varðar og tekið mið af aðstæðum á hverjum tíma, er það vel.
Eitt umferðarslys varð í liðinni viku er stór jeppabifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg valt skammt vestan við Lyngás í Holtum snemma á miðvikudagsmorgunn. Ökumaðurinn sem var einn í bifreiðinni missti stjórn á jeppabifreið sinni eftir að hún fór að renna til á mjög hálum veginum með þeim afleiðingum að jeppabifreiðin snérist og valt heila veltu utan við veginn. Jeppabifreiðin er mjög mikið skemmd á eftir, ef ekki ónýt en fjarlægja varð hana af vettvangi með kranabifreið. Ökumaðurinn var í framhaldinu fluttur með sjúkrabifreið í sjúkrahús en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg og án nokkurs vafa má þakka bílbeltum sem ökumaðurinn notaði að ekki fór enn verr hvað ökumanninn varðar. Þegar slysið varð þá var nokkur vindur af norðri með hvössum éljagangi og skafrenningi er stóð nánast þvert á Suðurlandsveginn auk þess sem yfirborð hans var mjög hált eins og fyrr segir.
Skráningarnúmer voru klippt af nokkrum ökutækjum í liðinni viku þar sem eigendur og eða umráðamenn þeirra höfðu ekki gert skil á greiðslum vegna þungaskatts og trygginga. Enn eru í umferð ökutæki þar sem ekki hafa verið gerð skil á greiðslum þungaskatts eða trygginga og mun lögreglan halda áfram að leita þeirra ökutækja og klippa númer af þeim ökutækjum, banna notkun þeirra, þar sem svo hagar til.
Þá er rétt að geta þess að margir hafa dregið eða trassað að láta skoða ökutæki sín vegna 2004, á þetta bæði við um aðal- og endurskoðun og mega þeir sem þannig er ástatt fyrir eiga von á að ökutæki þeirra verið boðuð til skoðunar með tilteknum fresti af hálfu lögreglunnar. Þegar gefinn frestur er liðinn má búast við að skráningarnúmer verði tekin af viðkomandi ökutæki án frekari viðvörunar. |