Í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í liðinni viku var tilkynnt um fjögur umferðaróhöpp. Á miðvikudag um hádegi var fólksbifreið ekið útaf Suðurlandsvegi móts við Ásólfsskál, engin hálka var á veginum og akbraut þurr. Bifreiðin stöðvaðist á hjólunum út í skurði eftir að hafa farið í gegn um girðingu og skemmst nokkuð en ökumaður slapp án meiðsla. Á fimmtudag fór bifreið útaf Suðurlandsvegi við Kúðafljót í mikilli hálku, engar skemmdir urðu á bifreiðinni né meiðsl á fólki.
Veður var með versta móti í vikunni þó ekki hafi orðið mikil tjón tengd því, en á föstudag fauk stór flutningabifreið út af og valt með eftirvagn austan við Svínafellsá í Öræfum, ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið til Hafnar í Hornfirði. Ökumaður reyndist minna slasaður en talið var í fyrstu og fékk að fara heim samdægurs en bifreiðin skemmdist mikið.
Eldsneytisflutningabifreið fór á hliðina á Bakkavegi í Landeyjum um kaffileytið á föstudag, ökumaður slapp ómeiddur en um tíu þúsund lítrar af flugvélabensíni voru í tönkum bifreiðarinnar og tókst að bjarga því að mestu.
Einn ökumaður var grunaður um ölvun við akstur í vikunni og 17 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt um umdæmið.
Að lokum vill lögregla minna ökumenn á að athuga ljósabúnað bifreiða sinna nú í skammdeginu en þó nokkuð ber á því að lögregla þurfi að hafa afskipti af ökumönnum vegna þess að ástand ljósabúnaðar bifreiða þeirra er ekki í lagi. |