Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Suðurnes - 08  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Ljósanótt  
 Leyfi - Eyðublöð  
 Ársskýrslur  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Suðurnes - 08 - Helstu verkefni   
27.3.2007

Vikan 26. mars til 2. apríl 2007

Mánudagur 26. mars 2007

 

Einn ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi.  Hann mældist á 128 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

Annars tíðindalaust hjá lögreglunni á Suðurnesjum eftir nóttina.

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00.

 

Eigendur/umráðamenn fimm ökutækja voru boðaðir með ökutækin sín til skoðunar vegna vanrækslu á aðalskoðun og endurskoðun.  Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni og mældist sá er hraðar ók á 118 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.

 

Rólegt var á dagvaktinni í dag.

 

Þriðjudagur 27. mars 2007.

 

Kl. 04:00 barst lögreglunni tilkynning um að bifreið hefði verið ekið á steypustykki á Reykjanesbrautinni á milli Vogavegar og Grindavíkurvegar, en þar eru vegaframkvæmdir.  Engin meiðsl urðu á fólki en bifreiðin skemmdist nokkuð og var dregin á brott með dráttarbifreið.  Annars var nóttin tíðindalaus hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

 

Einn ökumaður var á dagvaktinni kærður fyrir hraðakstur á Grindavíkurvegi. Mældist bifreið hans á 121 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. Þá var einn ökumaður vörubifreiðar kærður fyrir að ganga ekki frá farmi sínum sem skyldi en um var að ræða malarflutningabifreið þar sem farmurinn stóð upp fyrir skjólborðin á palli bifreiðarinnar.

 

Árekstur varð með tveimur bifreiðum á gatnamótum Hafnargötu og Mánagötu í Grindavík um kl. 20:30.  Minniháttar eignartjón og engin slys urðu á fólki.

 

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot.  Einn fyrir að vera ekki með bílbeltið spennt og annar fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut en hann ók á 131 km hraða.

 

Miðvikudagur 28. mars 2007.

 

Einn ökumaður var stöðvaður á Reykjanesbraut fyrir of hraðan akstur en hraði bifreiðar hans mældist 117 km/klst.

 

Fimm voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag.  Sá er hraðast ók mældist á 134 km/klst., þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

 

Næturvaktin hófst kr. 19:00.

 

Fjórir voru teknir fyrir of hraðan akstur í Reykjanesbæ og Reykjanesbraut í kvöld.  Þar af mældurs tveir á Njarðarbraut á 96 og 71 km/klst., þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst.

Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur í Reykjanesbæ í kvöld. 

Þá var einn ökumaður tekinn fyrir að aka sviptur ökuréttindum í Reykjanesbæ.

 

Fimmtudagur 29. mars 2007

 

Ekkert fréttnæmt eftir miðnætti hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

 

Tveir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í dag.  Sá fyrri stöðvaður á 123 km/klst. á Grindavíkurvegi, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. og sá síðari á Reykjanesbrautinni á 116 km/klst., þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

 

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00

 

Föstudagur 30. mars 2007.

 

Næturvaktin var tíðindalaus.

 

Dagvaktin hófst kl. 19:00. 

 

Dagvaktin var fremur róleg hjá lögreglunni á Suðurnesjum.  Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og mældist sá er hraðar fór á 131 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.  Tilkynnt var um eitt minniháttar umferðaróhapp

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00

 

Rétt fyrir miðnætti var einn ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur á Sandgerðisvegi en hann mældist á 139 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

Rétt fyrir klukkan þrjú var lögregla send að að heimli í Vogunum en þar hafði unglingapartí farið úr böndunum. Gekk vel að koma unglingunum þar út.

 

Seinni part nætur var tilkynnt um hópslagsmál fyrir utan skemmtistaðinn Yello en þar hafði íslendingum og pólverjum lent saman. Slagsmál yfirstaðin er lögregla kom á vettvang en talsverður hiti í mönnum.

 

Undir lok vaktar var komið með ölvaðann ökumann á lögreglustöðina.

 

Laugardagur 31.mars

 

Dagvaktin hófst kl. 07:00.

 

Skömmu eftir vaktarskiptin var ökumaður stöðvaður vegna meintrar ölvunar við akstur.  Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og mældist sá er hraðast ók á 122 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.  Rétt fyrir kl. 17:00 var tilkynnt að bifreið væri föst við Vigdísarvelli skammt frá Suðurstrandavegi.  Björgunarsveitin Þorbjörn fór á staðinn og aðstoðaði ferðalangana.  Annars var dagvakt lögreglunnar á Suðurnesjum tíðindalaus.

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00

 

Tveir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og sá er hraðast ók mældist á 121 km/klst á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraðinn er 90 /km.klst. Hinn ökumaðurinn mældist 116 km/klst á Garðvegi þar sem hámarkshraðinn er 90/km.klst

 

Fyrr um kvöldið var óskað eftir aðstoð lögreglu að veitingastaðnum Víkingnum í Vogunum en þar hafði viðskiptavinur dottið á höfuðið. Lögreglumenn óku honum á Heilbrigðisstofnum Suðurnesja þar sem saumuð voru í hann 6. spor.

 

Eigendur fimm ökutækja voru kærðir fyrir að leggja öfugt miðað við akstursstefnu.

 

Sunnudagur 1 apríl 2007

 

Laust eftir miðnætti veittu lögreglumenn á eftirliti athygli bifreið er var ekið frá hafnarsvæðinu áleiðis inn á Víkurbraut í Reykjanesbæ. Farþegi í framsætinu hafði tyllt sér á gluggapóst bifreiðarinnar og baðaði út höndunum meðan bifreiðin var á ferð. Lögreglumennirnir stöðvuðu akstur bifreiðarinnar og fengu þá skýringu að farþegi í aftursæti bifreiðarinnar hefði leyst vind með þeim afleiðingum að farþeginn í framsætinu sá sér ekki fært að vera inni í bifreiðinni á meðan og brá því á þetta ráð til að fá sér ferskt loft.

Farþeginn mun eiga von á sekt fyrir að vera ekki í öryggisbelti.

 

Á dagvaktinni var einn ökumaður staðinn að of hröðum akstri á Reykjanesbruat, en hann ók 139 km/klst.  Þá er hann einnig grunaður um ölvun við akstur.

 

Þá voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut.  Sá er ók hraðast ók á 140 km/klst.

 

Um kl. 17:40 var tilkynnt að ungur maður hafi fallið af torfæruhjóli sínu í Sandvík, skammt sunnan við Hafnir á Reykjanesi.  Ekki er vitað nákvæmlega um meiðsli ökumanns en líklegt er talið að sé fótbrotinn.  Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með sjúkrabifreið.

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00

 

Einn ökumaður stöðvaður vegna hraðaksturs á Reykjanesbrautinni en hann mældist á 124 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

 

Mánudagur 2. apríl

 

Bílvelta varð á Nesvegi við Húsatóftarvöll í Grindavík um þrjúleytið í nótt. 3 voru í bifreiðinni ásamt ökumanni og voru allir í beltum. Ökumaðurinn var færður á slysadeild með skrámur á hendi.

 

Lítið annað títt af næturvaktinni.

 

Rólegt var á dagvaktinni í dag.

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00.

 

Þriðjudagur 03. apríl 2007.

 

Þrír ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi og nótt.  Tveir á Reykjanesbrautinni annar á 114 en hinn á 146 km/klst. þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.  Sá þriðji var tekinn á 77 km/klst á Njarðarbraut í Reykjanesbæ þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst.  Þá voru þrjár bifreiðar boðaðar í skoðun af lögreglu fyrir vanrækslu á aðalskoðun.

 

Næturvaktin hófst kl. 19:00.

 

Kl. 20:00 var tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum um bílveltu á Vatnsleysustrandarvegi skammt austan við Voga.  Þarna hafði bíll hafnað á toppnum og tveir farþegar í aftursæti slasast.  Ökumaðurinn ásamt þremur farþegum voru allir komnir út af sjálfsdáðum er lögreglan kom á vettvang.   Tveir farþegar, sem sátu aftur í  bifreiðinni slösuðust við veltuna en þeir voru ekki í bílbeltum.  Þeir voru fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahús.  Annar var fluttur á Landsspítala Háskólasjúkrahús en hinn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.  Bifreiðina var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið.

 

Miðvikudagur 04. apríl 2007.

 

Einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í nótt.  Hann mældist á 114 km/klst, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst.

 

 

 


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarksfjöldi umferðarpunkta hjá einstaklingi með ökuskírteini sem gildir til 70 ára aldurs er 12 umferðarpunktar?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur