Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Búðardalur - 15  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Búðardalur - 15 - Helstu verkefni   
17.10.2005

Helstu verkefni 10.-16. okt. 2005

Vikan var róleg í Dölum framan af en undir lok vikunnar var greinilega komin rjúpnaveiðihugur í veiðimenn og var þó nokkuð hringt og spurt um veiðilendur.  Embættið hefur ekki upplýsingar um það á takteinum nema landeigendur hafi sérstaklega tilkynnt lögreglu hvernig veiðum á þeirra jörðum sé háttað og það hafa örfáir gert. Veiðimenn eru því hvattir til að kynna sér vel eignalönd og leita leyfis hjá landeigendum. 

Vitað er til þess að veiði í landi Glerárskóga í Hvammssveit er bönnuð.  Einnig er  veiði bönnuð í landi Ólafsdals í Gilsfirði en sú jörð er í eigu ríkisins og hefur landbúnaðarráðuneytið bannað allar rjúpnaveiðar á eyðijörðum í sinni eigu.  Áður en rjúpnaveiðibannið gekk í gildi var það þannig að allir máttu veiða á þessum eyðijörðum.  Þá hafa nokkrir bændur í Suðurdölum myndað með sér hlunnindafélag og leigt út rjúpnaveiði á sínum jörðum og því óheimil öðrum en leigutaka.  Þessir jarðeigendur eiga m.a. fjalllendið í kringum þjóðveginn á Bröttubrekku.  Þessar jarðir eru Vífilsdalur, Gröf, Fellsendi, Háafell, Sauðafell, Hlíðartún, Skallhóll, Breiðabólsstaður í Sökkólfsdal, Neðri-Hundadalur og Fremri-Hundadalur.

Lögreglan í Búðardal hélt uppi eftirliti með rjúpnaveiði um helgina og var mikill fjöldi veiðimanna á veiðum og á ferðinni í gegnum umdæmið vestur á firði.  Allir þeir sem voru stöðvaðir höfðu sín mál í lagi þ.e. veiðikort og skotvopnaleyfi.  Lögreglan ítrekaði við veiðimenn að afla leyfis landeiganda til veiðanna og tóku veiðimenn vel undir það.


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að frá og með 1. janúar hefur lögreglustjórinn á Ísafirði haft með höndum stjórn löggæslu á Vestfjörðum og tók yfir stjórn löggæslu í Bolungavík, á Hólmavík og á Patreksfirði
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur