Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
 Netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Dómsmálaráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Lúlli löggubangsi   

Til foreldra/forráðamanna leikskólabarna

Markmiðið var að kenna börnunum fáeinar umferðarreglur sem geta stuðlað að auknu öryggi þeirra í umferðinni.

Farið var yfir helstu umferðarreglurnar sem ætlaðar eru börnum. Þeim er skipt í hópa eftir aldri, þannig að þau fái fræðslu við hæfi miðað við þroska.

Að ganga yfir götu – stoppa á ganstéttinni, líta vel til beggja hliða og hlusta. Börnunum er sagt að gott sé að leiða mömmu og pabba (einhvern fullorðinn) yfir götuna. Brýnt er fyrir börnunum að hlaupa ekki yfir götuna. Börnunum er sögð saga um Lúlla löggubangsa sem hljóp yfir götuna og varð fyrir bíl.
Hvernig á að fara yfir bílastæði – Talað um bílastæði og börnin fengin til þess að finna út hvers vegna þau mega ekki hlaupa yfir bílastæðið og hvers vegna þau eigi ekki að fara á undan mömmu eða pabba.
Endurskinsmerki – Börnunum sýnd endurskinsmerki. Lögreglumaðurinn er með mikið af endurskinsmerkjum á búningnum sínum.
Bifreiðin – Sögð er saga af Lúlla löggubangsa þegar hann fer í bíl í fyrsta skipti. Hann situr að sjálfsögðu aftur í og á bílpúðanum sínum og spenntur í öryggisbelti. Lúlli losar beltið án þess að bílstjórinn viti um það. Þegar bílstjórinn þarf að bremsa mjög snögglega kastast Lúlli til í bílnum og meiðir sig á trýninu.

Hjólreiðar og hjólreiðahjálmur – Sögð er saga af Lúlla löggubangsa þegar hann fór að hjóla. Hann notaði ekki hjálm og fékk því „kúlu“ á hausinn þegar hann dattt af hjólinu. Börnunum er sagt frá því að þau megi ekki hjóla á götunni heldur eigi þau að hjóla í garðinum heima, á leikvelli, göngustíg eða á gangstétt.

Lögreglan kemur í leikskólana eftir ósk leikskólakennara og foreldrafélaga eða að eigin frumkvæði – í samráði við starfsfólk hvers leikskóla fyrir sig.

Vissuð þið að:
• Mörg börn slasast ár hvert í umferðinni.
• Með góðum öryggisbúnaði og réttri notkun hans er hægt að koma í veg fyrir mörg slys.
• Mörg börn eru úti í umferðinni án sérstaks öryggisbúnaðar sem þau ættu að nota s.s. reiðhjólahjálms, öryggisbeltis, bílstóls eða bílpúða. Best er að byrja strax að venja börnin við öryggisbúnaðinn.
• Mörg börn fá að sitja í framsæti bíls fyrir framan upplásanlegan öryggispúða en það getur verið þeim lífshættulegt.
• Samkvæmt umferðarlögum ber ökumaður ábyrgð á því að farþegar yngri en 15 ára noti öryggisbúnað í bíl.
• Börn yngri en 6 ára eiga að nota barnabílstól eða bílpúða.
• Lögreglu er heimilt að sekta ökumann ef barn er laust í bíl.
• Hafið í huga að við sjálf erum fyrirmyndir.

Í framhaldi af þessu hvetur lögreglan þig/ykkur til að heimsækja heimasíðu lögreglunnar www.rls.is/forvarnir og viðbrögð þar sem finna má ítarlegri umfjöllun um forvarnastarf lögreglunnar – svo og aðra þætti í starfi hennar.


Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarkshraði á þjóðvegum (bundnu slitlagi) er 90 km/klst ?
 
  Fíkniefnasíminn  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð