Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fréttir   
31. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum á Sæbraut
Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík, á móts við Súðarvog. Um var að ræða 19 ára pilt en bíll hans mældist á 125 km hraða þar sem hámarkshraði er 60.
Meira
31. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átta óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru átta ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta...
Meira
31. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átta teknir fyrir ölvunarakstur
Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir...
Meira
31. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit konu
Kona var bitin af hundi í Reykjavík á laugardag. Hún var á gangi við verslunarmiðstöð í austurborginni þegar þetta gerðist en konan var bitin í fótlegginn svo á sá. Hundurinn, sem var bundinn, gelti að konunni sem ætlaði þá að „sussa” á hann með...
Meira
30. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefnamál - tveir í gæsluvarðhaldi
Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum og sterum. Karl á sextugsaldri er í haldi...
Meira
28. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þjófur í síbrotagæslu
Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 24. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu en hann var síðast handtekinn í fyrrinótt. Þá ók kauði um á stolnum bíl og var auk...
Meira
28. október 2011 | Selfoss - 33
Annir hjá lögreglumönnum á Selfossi
Miklar annir eru hjá lögrelgumönnum á Selfossi um þessar mundir. Tíu einstaklingar eru í haldi eftir nóttina. Fjórir Litháar bíða í fangageymslum þar til í dag að úrskurður dómara liggur fyrir vegna gæsluvarðhaldskröfu sem lögreglustjóri lagði...
Meira
27. október 2011 | Selfoss - 33
Krafa gerð um gæsluvarðhald yfir fjórum Litháum
Lögreglan á Selfossi hefur, í Héraðsdómi Suðurlands, lagt fram kröfu um gæsluvarðhald í fjórar vikur yfir þrem Litháum sem handteknir voru síðastliðna nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli. Þá var gerð krafa um tíu daga gæsluvarðhald yfir fjórða...
Meira
27. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Líkamsárás, hótanir og frelsissvipting
Þrír karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í fangelsi í svokölluðu Black Pistons-máli en tveir mannanna eru meðlimir í samnefndum vélhjólaklúbbi. Málið kom til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í maí en þangað leitaði...
Meira
27. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vopnað rán - gæsluvarðhald til 10. nóvember
Karl á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna aðildar að vopnuðu ráni í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík í síðustu viku. Maðurinn, sem er pólskur, var handtekinn í gær...
Meira
27. október 2011 | Selfoss - 33
Fjórir karlmenn í haldi lögreglunnar á Selfossi
Í nótt er leið voru þrír erlendir ríkisborgarar handteknir í orlofshúsi í Árnessýslu grunaðir um ólöglega vörzlu og meðferð mikils magns meints kókaíns. Í framhaldi var fjórði erlendi ríkisborgarinn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á...
Meira
26. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vopnað rán upplýst
Lögreglan hefur upplýst vopnað rán sem var framið í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík í síðustu viku. Stolið var nokkrum tugum úra sem nú hafa verið endurheimt. Einn maður er í haldi lögreglu vegna málsins og þriggja er leitað. Mennirnir eru allir...
Meira
26. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þjófnaður - tveir í gæsluvarðhaldi
Tvær konur hafa verið úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um stórfelldan þjófnað úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Lagt hefur verið hald á umtalsvert magn af því sem talið er vera þýfi...
Meira
26. október 2011 | Selfoss - 33
Harður árekstur á Skálholtsvegi
Um klukkan 15 í dag var mjög harður árekstur á Skálholtsvegi skammt austan við Biskupstungnabraut. Ökumaður fólksbifreiðar á leið vestur Skálholtsveg er talinn hafa misst bifreið sína út í vegkantin og brugðist við með því að kippa í stýrið inn á...
Meira
25. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Landaframleiðsla í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði landaframleiðslu í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á sunnudag. Lagt var hald á hátt í 200 lítra af landa og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Karl um fimmtugt var handtekinn og yfirheyrður í þágu...
Meira
25. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Snákur haldlagður í Breiðholti
Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur en dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir.
Meira
25. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Unglingar á stolnum bíl
Tveir unglingspiltar voru handteknir í Arnarnesi snemma á laugardagsmorgun eftir að lögreglan veitti stolnum fólksbíl eftirför frá Hafnarfjarðarvegi. Sá eldri, 16 ára, ók bílnum en hinn, 15 ára, sat í framsæti. Piltarnir voru allsgáðir en þeir hafa...
Meira
24. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Níu teknir fyrir ölvunarakstur
Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Þrír voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar...
Meira
24. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fimm óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19-28 ára og ein kona, 36 ára, en einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Fíkniefni fundust í þremur...
Meira
24. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Rannsókn umferðarslyss í Kópavogi
Alvarlegt umferðarslys varð á Dalvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan fjögur síðastliðin miðvikudag. Aðdraganda slyssins má rekja til þess að gámabifreið var beygt í veg fyrir hjólreiðamann sem lenti á bifreiðinni og undir henni. Bæði ökumaður...
Meira
23. október 2011 | Selfoss - 33
Handtaka í Þorlákshöfn síðastliðna nótt.
Yfirheyrslum yfir manni sem handtekinn var í Þorlákshöfn í nótt er lokið og telst málið upplýst. Ekkert bendir til þess að hann hafi beint vopnum sínum gegn öðru fólki. Maðurinn er laus úr höndum lögreglu en nýtur handleiðslu lækna...
Meira
23. október 2011 | Selfoss - 33
Skoti hleypt af í Þorlákshöfn
Lögreglan á Selfossi rannsakar nú mál manns sem handtekinn var á heimili sínu í Þorlákshöfn í nótt. Maðurinn er grunaður um að hafa hleypt af skoti eða skotum á eða við heimili sitt en óljóst er um tilgang þess. Hann hafði einnig skorið eða...
Meira
21. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrotsþjófar handteknir - þýfi endurheimt
Þrír piltar á aldrinum 17-21 árs hafa viðurkennt að hafa brotist þrisvar sinnum inn í sömu verslunina á höfuðborgarsvæðinu og stolið tölvum og tölvubúnaði. Tekist hefur að endurheimta þýfið að stærstum hluta og hefur því verið komið aftur í réttar...
Meira
21. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefni og fjármunir fundust við húsleit
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 100 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um miðja vikuna. Á sama stað var einnig að finna töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna...
Meira
20. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Óþreyjufullur ökumaður
Sumir eru ansi óþreyjufullir þegar bílprófið er annars vegar og hugsanlega er sextán ára piltur, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af í gær, í þeim hópi. Sá ók bíl sem var stöðvaður í Kópavogi um kvöldmatarleytið en eðli málsins...
Meira
20. október 2011 | Akureyri - 24
Vímuakstur og fíkniefni á Akureyri
Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á fertugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 30 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu sem...
Meira
20. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot í bíla
Brotist var inn í fjóra bíla í Reykjavík og Kópavogi í gærkvöld og nótt. Úr þeim var stolið m.a. fartölvum, greiðslukortum og I-pod. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir...
Meira
19. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefnamál - gæsluvarðhald til 2. nóvember
Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fíkniefnamisferli. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Hann var handtekinn í...
Meira
19. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit bréfbera
Maður var bitinn af hundi á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Hann var við útburð þegar þetta gerðist en maðurinn var bitinn í fótlegginn. Í kjölfarið leitaði hann á slysadeild en ekki er vitað frekar um meiðslin. Ekki er ljóst hvað verður um...
Meira
19. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gær og nótt. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 29-72 ára. Einn þeirra hefur aldrei öðlast ökuréttindi og annar var með fíkniefni í fórum...
Meira
19. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ók á beltagröfu
Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í gær en í einu þeirra var ekið á beltagröfu, sem var kyrrstæð og mannlaus á Vesturlandsvegi. Ökumaðurinn, maður á miðjum aldri var fluttur á slysadeild en óhappið er rakið til þess að talsvert...
Meira
19. október 2011 | Akureyri - 24
Vímuakstur og fíkniefni á Akureyri
Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á þrítugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 100 grömm af kannabisefnum sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus...
Meira
19. október 2011 | Selfoss - 33
Innbrot og nytjastuldur í Þorlákshöfn
Milli kl. 00:30 og 08:00 í morgun var brotist inn á bílaverkstæði Bíliðjunar við Unubakka 48 í Þorlákshöfn og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið. Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá,...
Meira
18. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þýfi haldlagt
Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Kópavogi síðdegis í gær en í bíl þeirra fannst þýfi. Ökumaðurinn bar af sér allir sakir og var með skýringar á reiðum höndum en þær reyndust uppspuni enda um stolna muni að ræða. Farþeginn hafði sig...
Meira
18. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrotsþjófur handtekinn
Innbrotsþjófur var handtekinn í austurborginni í morgun. Um var að ræða karl á fertugsaldri en viðkomandi hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Maðurinn var blóðugur á höndum og í annarlegu ástandi. Hann var fluttur á slysadeild til...
Meira
18. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vopnað rán - myndbirting
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manna sem frömdu vopnað rán í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærmorgun. Vegna málsins er óskað sérstaklega eftir vitnum að grunsamlegum mannaferðum á Vegamótastíg frá kl. 10 - 10:30 í...
Meira
17. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-31 árs. Þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Þá stöðvaði lögreglan fólksbíl í Kópavogi aðfaranótt...
Meira
17. október 2011 | Akureyri - 24
Bílþjófnaðir, vímuakstrar og fíkniefni í umdæmi lögreglunnar á Akureyri
Um s.l. helgi voru tveir ökumenn stöðvaðir grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna á Akureyri. Farþegi í annarri bifreiðinni reyndist hafa undir höndum um 2 grömm af amfetamíni og um 20 grömm af kannabisefni. Allir voru látnir lausir að loknum...
Meira
17. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vopnað rán - manna leitað
Vopnað rán var framið í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í morgun. Ræningjarnir komust undan og er þeirra nú leitað. Þeir voru vopnaðir byssum og hafa tvær þeirra fundust, en um eftirlíkingar er að ræða. Ekki er hægt að veita...
Meira
17. október 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Afbrotatíðindi ríkislögreglustjóra 2011-september
Samanburður á fjölda brota árið 2010, greint eftir embættum sýnir að meirihluti þeirra er á höfuðborgarsvæðinu eða 55%. Skýrsluna má nálgast...
Meira
14. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Vogahverfi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Vogahverfinu í Reykjavík í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á rúmlega 50 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Enginn býr í íbúðinni, sem var undirlögð...
Meira
14. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum í Árbæ
Ölvaður ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í hádeginu en um var að ræða karl á þrítugsaldri, sem lögreglan hafði afskipti af í Árbæ. Síðdegis var kona á sextugsaldri færð á lögreglustöð eftir umferðaróhapp í Garðabæ en grunur lék á...
Meira
13. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ók á ljósastaur
Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í gær en í einu þeirra var ekið á ljósastaur í Grafarvogi. Ökumaðurinn, piltur um tvítugt, var fluttur á slysadeild en óhappið er rakið til þess að hann var að leita að símanum sínum og missti þá...
Meira
13. október 2011 | Akureyri - 24
Húsleitir og fíkniefni á Akureyri
Um miðjan dag í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð manns á fertugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hald var lagt á um 30 grömm af amfetamíni og nokkur grömm af kannabisefnum. Einnig voru haldlögð um 40 grömm af muldum e-töflum...
Meira
13. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Framkvæmdir á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ
Vegna framkvæmda við þverun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ milli Langatanga og Reykjavegar má búast við truflunum á umferð milli kl. 10 og 12 í dag, fimmtudag. Loka þarf fyrir umferð á hvorri akrein í um það bil 30 mín. í senn , þó ekki samtímis. Á...
Meira
11. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Eftirlitslaus unglingapartí
Talsvert var kvartað undan hávaða frá gleðskap í heimahúsum um helgina. Í nokkrum tilvikum var um að ræða eftirlitslaus unglingapartí en í þau mæta stundum mun fleiri gestir en húsráðendur gera ráð fyrir. Svo átti við um helgina og var þá beðið um...
Meira
11. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í miðborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á rúmlega 130 kannabisplöntur og voru þær á ýmsum stigum ræktunar. Á staðnum var mjög fullkominn búnaður...
Meira
11. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Síbrotamaður í fangelsi
Karl um þrítugt, sem stal sprengiefni úr tveimur rammgerðum gámum í síðustu viku, var á reynslulausn. Eftir yfirheyslu í gær var hann færður í Héraðsdóm Reykjavíkur sem úrskurðaði að maðurinn skildi hefja afplánun þegar í stað. Hann var því færður...
Meira
10. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sprengiefnið fundið - einn handtekinn
Sprengiefnið, sem var stolið úr tveimur rammgerðum gámum í Þormóðsdal ofan við Hafravatn á dögunum, fannst við húsleit í Hafnarfirði og Kópavogi seint í gærkvöld. Karl um þrítugt, sem á langan afbrotaferil að baki, var handtekinn í þágu...
Meira
8. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sprengiefni stolið
Á fimmtudag fékk lögregla tilkynningu um innbrot og þjófnað úr sprengiefnagámi í Þormóðsdal ofan við Hafravatn. Um 300 kg af dýnamíti var stolið auk nokkurs magns af kjarna, hvellhettum og sprengihnalli. Rannsókn málsins stendur yfir en hefur ekki...
Meira
7. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Húsleit í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á nokkra tugi gramma af ætluðu amfetamíni og marijúana við húsleit í Reykjavík í dag. Á sama stað var einnig að finna sveðju og stera og var það sömuleiðis tekið í vörslu lögreglu. Húsráðandi, karl um...
Meira
7. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Síðustu forvöð
Talsvert er kvartað undan hávaða að næturlagi frá gleðskap í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu en tilkynningar þess efnis berast lögreglu í hverri viku. Tilefni veisluhalda er misjafnt en þó verður að teljast sjaldgæft að menn haldi sérstaklega upp...
Meira
7. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Úr umferðinni
Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gærkvöld og nótt. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 24-48 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar var með fimm farþega í bílnum hjá sér en sá...
Meira
6. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Reykjanesbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum, stöðvaði kannabisræktun í húsi í Reykjanesbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað fundust einnig sterar...
Meira
5. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Forvarnardagurinn 2011
Forvarnardagurinn 2011 er í dag en hann er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum...
Meira
5. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kókaín haldlagt
Fjórir karlar og ein kona voru handtekin í lok síðustu viku í aðgerðum lögreglu tengdum fíkniefnaviðskiptum. Samtals var lagt hald á um hálft kg af ætluðu kókaíni. Einn fimmmenninganna er erlendur karlmaður á fimmtugsaldri og var hann úrskurðaður í...
Meira
4. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fæðing á Miklubraut
Þótt lögreglumenn verði oft vitni að því versta í lífinu koma líka ánægjulegar stundir og þá fara þeir svo sannarlega glaðir heim af vaktinni. Svo var einmitt með tvo lögreglumenn sem voru kallaðir til aðstoðar í úthverfi á höfuðborgarsvæðinu, laust...
Meira
4. október 2011 | Selfoss - 33
Lögreglan á Selfossi leitar vitna vegna árásar á 10 ára dreng
Þann 7. september síðastliðinn veittust þrír ungir menn að 10 ára dreng í skrúðgarðinum í Þorlákshöfn. Atvikið átti sér stað á milli klukkan 18:00 og 19:00. Talið er að ungu mennirnir hafi verið á vínrauðum skutbíl. Á þeim er gefin eftirfarandi...
Meira
4. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Skothylki við Alþingishúsið
Karlmaður á miðjum aldri hefur gefið sig fram við lögreglu og sagt að líklega eigi hann skothylkin sem fundust við Alþingishúsið í morgun. Maðurinn var á Austurvelli í gærkvöld en daginn áður var hann að svipast um eftir gæs og var því með örfá 22...
Meira
3. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Vesturlandsvegi
Sautján ára piltur var staðinn að hraðakstri á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gærkvöld. Bíll hans mældist á 140 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80. Pilturinn, sem fékk ökuskírteini í hendur nýverið, á greinilega margt ólært en hann fær nú...
Meira
3. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur
Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-47 ára og...
Meira
3. október 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fjórir óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fjórir ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru tveir karlar, 21 og 24 ára, og tvær konur, 22 og 32 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en annar þeirra var á stolnum...
Meira

2013
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2012
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2011
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2010
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2009
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2008
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2007
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2006
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2005
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2004
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2003
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2002
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2001
Desember
Nóvember
Október
September

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarkshraði með tjaldvagn eða kerru á bundnu slitlagi er 80 km/klst ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur