Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fréttir   
31. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2009 - bráðabirgðatölur
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2009. Hafa ber þann fyrirvara á þessum upplýsingum að tölur fyrir árið 2009 eiga enn eftir að hækka. Þessar upplýsingar gefa þó innsýn í það hvert...
Meira
30. desember 2009 | Selfoss - 33
Fangi sem strauk fundinn
Tver fangar struku af Litla-Hrauni um kl. 18:20 í dag. Fangaverðir náðu öðrum þeirra strax en hinn hljóp út í myrkrið. Hann fannst siðan í húsi á Eyrarbakka og var handtekinn þar kl. 20:45. Fanginn verður fluttur í fangelsið á...
Meira
30. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Slæm umgengni í miðborginni
Sérhvern morgun um helgar sópa hópar hreingerningarmanna upp drasl eftir fullorðið fólk sem átt hefur leið um miðborg Reykjavíkur. Ásýnd svæðisins minnir meira á svínastíu en stræti og torg manna; hvarvetna brotnar flöskur og glös, tómar bjórdósir,...
Meira
30. desember 2009 | Vestmannaeyjar - 32
Fíkniefnamál í Vestmannaeyjum
Við reglubundið eftirlit með komu Herjólfs í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af ökumanni bifreiðar og farþega hennar vegna gruns um fíkniefnamisferli. Bifreiðin var færð á lögreglustöðina þar sem eigandi hennar sem jafnframt var ökumaður hennar...
Meira
29. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í gær. Við húsleit í íbúð í Breiðholti var lagt hald á rúmlega 200 kannabisplöntur. Á sama stað fannst einnig landi og bruggtæki og var það sömuleiðis tekið í vörslu...
Meira
24. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Jólakveðja frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendir landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Árið sem nú er að líða hefur verið annasamt hjá lögreglunni og á hennar borð hafa komið ótal mál til úrlausnar, bæði stór og smá. Nokkrar...
Meira
24. desember 2009 | Selfoss - 33
Eldur í sjónvarpi í íbúðarhúsi á Selfossi
Eldur kviknaði í sjónvarpi í íbúðarhúsi við Kálfhóla á Selfossi skömmu fyrir kl. 10 í morgun. Húsbóndinn á heimilinu tók upp logandi sjónvarpið og kom því út úr húsinu. Slökkvi- sjúkra- og lögreglulið fór þegar á staðinn en þá var sjónvarpið komið...
Meira
24. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Umferð á aðfangadag - kirkjugarðar
Búast má við talsverðri umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu í dag, aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Bílaumferð inn í...
Meira
24. desember 2009 | Selfoss - 33
1667 ökumenn stöðvaðir á sex dögum í Árnessýslu
Lögreglumenn á Selfossi hafa frá 17. desember haldið uppi öflugu umferðareftirliti á vegum í Árnessýslu. Einkum var verið að fylgjast með ölvunar- og fíkniefnaakstri auk annara atriða svo sem notkun öryggsbelta og búnaði ökutækja. Verkefnið var...
Meira
23. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átak gegn ölvunarakstri - 470 ökumenn stöðvaðir
Fjögur hundruð og sjötíu ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum mjög vel og því gekk eftirlitið vel fyrir sig.
Meira
23. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Verðmætum stolið úr yfirhöfnum
Töluvert er um að verðmætum sé stolið úr yfirhöfnum fólks en lögreglan hefur fengið margar slíkar tilkynningar að undanförnu. Sérstaklega á þetta við um verðmæti sem hafa verið skilin eftir í yfirhöfnum í fatahengjum samkomustaða, t.d. á hótelum og...
Meira
23. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ
Brot 130 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg en á þessum stað varð banaslys í síðustu viku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.793...
Meira
22. desember 2009 | Ríkislögreglustjórinn
Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir nóvember 2009
Afbrotatölfræði fyrir nóvember hefur nú verið birt á vef ríkislögreglustjóra www.rls.is/tolfraedi. Þar má m.a. sjá yfirlit yfir fjölda hegningarlaga-, umferðarlaga- og fíkniefnabrota. Á síðustu 12 mánuðum voru að meðaltali 122...
Meira
21. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ökufantur í fangelsi
Ökufanturinn sem var handtekinn í Kópavogi í gær hefur verið færður í fangelsi en þar hefur hann hafið afplánun vegna annarra mála. Um er að ræða eftirstöðvar fangelsisvistar. Eins og fram hefur komið var manninum, sem er um þrítugt og hefur ítrekað...
Meira
21. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átak gegn ölvunarakstri - 500 ökumenn stöðvaðir
Um fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á vettvangi og...
Meira
21. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarnesveg en á þessum stað varð banaslys í síðustu viku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.176...
Meira
21. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Svanur í sundi
Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við lögreglumönnum í sundlaug Kópavogs í gær. Þar hafði svanur fengið sér sundsprett í óþökk starfsmanna sem kölluðu til laganna verði. Ekki kom til þess að álftin væri handtekin því lögreglumenn voru...
Meira
20. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Eftirför - ökufantur handtekinn í Kópavogi
Ökufantur var handtekinn eftir mikla eftirför í Kópavogi í dag. Eftirförin hófst raunar í Hafnarfirði en þar veittu lögreglumenn eftirtekt bíl sem var stolið í Árbæ í nótt. Bílþjófurinn, karl um þrítugt sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu,...
Meira
20. desember 2009 | Seyðisfjörður - 26
Innbrot í Olís Fellabæ, upplýst.
Innbrot í verslun Olís í Fellabæ var tilkynnt til lögreglunnar á Egilsstöðum um kl. 09:0 í morgun, sunnudag en þar hafði verið brotist inn s.l. nótt. Þar höfðu verið brotnar þrjár rúður m.a. í inngöngudyrum og farið inn. Talsvert hafði verið...
Meira
18. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Umferðarslysið á Hafnarfjarðarvegi - tveir látnir
Um klukkan 10 í morgun var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Lentu þar í árekstri tvö ökutæki og beinist rannsókn málsins að því hvort öðru þeirra hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming. Báðir ökumennirnir...
Meira
18. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hafnarfjarðarvegur - opnað fyrir umferð til suðurs
Opnað hefur verið fyrir umferð á Hafnarfjarðarvegi til suðurs. Gert er ráð fyrir að hægt verði að opna fyrir umferð til norðurs eftir u.þ.b. hálfa klukkustund. Eins og fram hefur komið varð banaslys á Hafnarfjarðarvegi á móts við Arnarnesbrú um...
Meira
18. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Banaslys á Hafnarfjarðarvegi
Banaslys varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Arnarnesbrú um kl. 10:00 í morgun. Lentu þar saman tvö ökutæki. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar og ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru fluttir mikið slasaðir af vettvangi. Því miður er ekki...
Meira
18. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Alvarlegt umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi
Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Hafnarfjarðarvegi um tíuleytið í morgun þegar tvær bifreiðar skullu saman við Arnarnesbrúna en mikil hálka er á veginum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Reynt er að greiða fyrir umferð eins...
Meira
17. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ
Brot 303 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Hnoðraholtshverfi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1194 ökutæki þessa akstursleið og því ók...
Meira
17. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Amfetamín, kannabisplöntur og stolinn bíll
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 250 grömm af amfetamíni sem...
Meira
16. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Háaleiti - 160 plöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Háaleiti í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 160 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 25 grömm af marijúana.
Meira
16. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 70 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, sunnan Straumsvíkur. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 396 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega...
Meira
16. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur í Hörgslandi í Reykjavík
Brot 17 ökumanna voru mynduð í Hörgslandi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hörgsland í suðurátt, að Hjallalandi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna,...
Meira
16. desember 2009 | Lögregluskóli ríkisins
Brautskráning frá Lögregluskóla ríkisins
Föstudaginn 11. desember 2009 fór brautskráning nemenda Lögregluskóla ríkisins fram við hátíðlega athöfn í Bústaðakirkju. Brautskráðir voru 13 nemendur sem hófu nám við skólann þann 9. september 2008. Hlutfall kvenna í hópi brautskráðra var 30,8%. ...
Meira
16. desember 2009 | Akureyri - 24
Kannabisefni og peningar haldlagðir við húsleit á Akureyri
Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð í Glerárhverfi í gærkvöldi eftir að grunsemdir höfðu kviknað um fíkniefnamisferli þar. Við húsleitina fundust rúmlega 120 grömm af hassi og smáræði af hvítum efnum, en einnig var ein kannabisplanta í...
Meira
15. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Öflug nágrannavarsla í Hlíðunum
Svo virðist sem öflug nágrannavarsla sé nú í Hlíðunum í Reykjavík en í tvígang hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtekið þar innbrotsþjófa eftir að íbúar í hverfinu tilkynntu um grunsamlegar mannaferðir. Í báðum tilvikum, á föstudaginn var og...
Meira
15. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Stöðubrot - hugsunarleysi ökumanna
Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en um helgina hafði lögreglan afskipti af ökutækjum vegna þessa. Einkum var um að ræða bifreiðar í miðborginni en myndirnar hér að neðan sýna vel hvað við er átt. Á þeirri efri má sjá hvar tveimur bílum er lagt...
Meira
15. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Umferðarslys - vitni óskast
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Birkimel við Hringbraut í Reykjavík fimmtudagskvöldið 10. desember sl. Ekið var á gangandi vegfaranda á fyrrnefndum stað þetta áðurnefnda kvöld klukkan 22.37. Þeir sem...
Meira
15. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átak gegn ölvunarakstri - 500 ökumenn stöðvaðir
Rúmlega fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á...
Meira
14. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Lögreglan leitar leigubílstjóra
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar leigubílstjóra í tengslum við rannsókn máls hjá embættinu. Hann er talinn vera um fertugt, 175 sm á hæð og með músarlitað eða dökkt, stutt hár. Maðurinn er íslenskur og 10-15 kg yfir kjörþyngd. Leigubíllinn sem...
Meira
11. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Mansal og vændi - áframhaldandi gæsluvarðhald
Kona um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hún er grunuð um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Konan var handtekin í...
Meira
11. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Lýst eftir Volkswagen Transporter UB-201
Lögreglan lýsir eftir Volkswagen Transporter Panel Van sendibifreið með skráningarnúmerið UB-201 en henni var stolið frá Laugavegi 31 í Reykjavík í morgun. Bifreiðin er hvít að lit, árgerð 2001. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er...
Meira
10. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
2,5 kg af marijúana og 320 kannabisplöntur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 2,4 kg af marijúana og 210 kannabisplöntur. Um var að ræða svokallaða vatnsræktun en plönturnar voru flestar...
Meira
10. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Slys í miðborginni - féll af vinnulyftu
Karl á fertugsaldri slasaðist illa þegar hann féll nokkra metra niður af vinnulyftu í miðborginni í nótt. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist m.a. höfuðkúpubrotinn. Ekki er ljóst hvaða erindi hinn slasaði átti á vinnulyftunni á þessum tíma...
Meira
10. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Bílþjófur handtekinn í Kópavogi
Bílþjófur var handtekinn í Kópavogi um miðjan dag í gær. Sá hafði stolið bíl í bænum en viðkomandi hefur áður gerst sekur um nytjastuld. Þjófurinn, karl á þrítugsaldri, var ekkert á þeim buxunum að láta lögregluna handtaka sig og tók til fótanna...
Meira
10. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Eftirför í Reykjavík
Tvítugur ökufantur var handtekinn á Ártúnshöfða í nótt eftir að lögreglan hafði veitt honum eftirför. Um var að ræða pilt sem hafði verið staðinn að hraðakstri á Miklubraut við Skeiðarvogsbrúna en bíll hans mældist þar á 114 km hraða og var auk þess...
Meira
10. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 62 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, sunnan Straumsvíkur. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 322 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega...
Meira
10. desember 2009 | Ríkislögreglustjórinn
Daníelsslippsmáli lokið
Ríkissaksóknari hefur lokið athugun á erindi aðstandenda tveggja manna sem fundust látnir í Daníelsslipp við Mýrargötu í Reykjavík í mars 1985. Höfðu ættingjar mannanna krafist þess með bréfi til ríkissaksóknara í nóvember 2008 að fram færi...
Meira
9. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Vesturlandsvegi
Brot 17 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Kollafirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða...
Meira
9. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot og þjófnaðir
Fimm innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Tvö fyrirtæki í Breiðholti urðu fyrir barðinu á innbrotsþjófum en einhverju af peningum var stolið úr öðru þeirra. Þjófur var líka á ferðinni í húsi í Grafarholti og...
Meira
9. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ók á strætisvagn
Fólksbíl var ekið á strætisvagn á Suðurlandsbraut á móts við Grensásveg í gærkvöld. Ökumaður og tveir farþegar úr fólksbílnum voru fluttir á slysadeild en þeir kvörtuðu undan eymslum í baki og hálsi. Ökumann og farþega strætisvagnsins sakaði...
Meira
9. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunarakstur í Reykjavík
Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær. Annar var stöðvaður í Skeifunni en hinn á Sæbraut. Um var að ræða tvo karla, sá eldri er á sextugsaldri en sá yngri á fertugsaldri. Á Sæbraut hafði lögreglan einnig afskipti af...
Meira
8. desember 2009 | Ríkislögreglustjórinn
Tilkynning
Í tilefni af fréttaflutningi DV um að nafngreindur einstaklingur hafi á árinu 2006 gert tilraun til að þvætta 30 milljarða króna í viðskiptum hjá Landsbankanum og vegna ásakana blaðsins um að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki rannsakað málið...
Meira
8. desember 2009 | Selfoss - 33
Innbrot í Vínbúðina í Hveragerði
Í nótt var brotist inn í Vínbúðina í Hveragerði og þaðan stolið áfengi. Um kl. 00:35 bárust boð um innbrot í Vínbúðina sem er til húsa hjá N1 við Breiðumörk. Þegar lögregla kom á staðinn var opinn hurð og ljóst að brotist hafði verið inn í...
Meira
7. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átak gegn ölvunarakstri - 1000 ökumenn stöðvaðir
Um eitt þúsund ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá fimmtudegi til laugardags í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit...
Meira
7. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á Suðurlandsvegi
Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, við Elliðakot. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 228 ökutæki þessa akstursleið og því óku frekar fáir ökumenn, eða 3%, of...
Meira
4. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Mansal og vændi - tvær konur úrskurðaðar í gæsluvarðhald
Tvær konur hafa verið úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 11. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konurnar, önnur um tvítugt en hin um þrítugt, eru grunaðar um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær eru báðar...
Meira
4. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur í Hamrahlíð í Reykjavík
Brot 49 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, nærri Stigahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 209 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna,...
Meira
3. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefni fundust við húsleit í Hafnarfirði
Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði síðdegis í gær. Um var að ræða um 100 grömm af marijúana. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Sem fyrr minnir lögreglan á...
Meira
3. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innflutningur á fíkniefnum - laus úr gæsluvarðhaldi
Karl á fimmtugsaldri og kona á þrítugsaldri, sem voru handtekin í síðustu viku og í kjölfarið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 2. desember í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi fíkniefna, eru laus úr haldi. Rannsókn...
Meira
2. desember 2009 | Lögregluskóli ríkisins
Námskeið í Lögregluskóla ríkisins um málefni útlendinga o.fl.
Þessa viku stendur yfir í framhaldsdeild Lögregluskóla ríkisins sérnámskeið um málefni útlendinga o.fl. Meðal kennsluefnis er skipulögð glæpastarfsemi og varnir gegn henni, ekki síst mansali. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) sendi af...
Meira
1. desember 2009 | Seyðisfjörður - 26
Kannabisræktun á Seyðisfirði
Lögregumenn við embætti lögreglustjórans á Seyðisfirði gerðu í dag húsleit í húsi á Seyðisfirði að fengnum dómsúrskurði. Við húsleit fundust um 60 kannabisplöntur og græðlingar. Að auki var talsvert af laufi í þurkun. Þá var og efni tilbúið til...
Meira
1. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur í Hvassaleiti í Reykjavík
Brot 10 ökumanna voru mynduð í Hvassaleiti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvassaleiti í norðurátt, skammt frá félags- og þjónustumiðstöðinni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók...
Meira
1. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Níu teknir fyrir ölvunarakstur
Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Þetta voru átta karlar á aldrinum 16-60 ára og ein kona, 43 ára. Meirihluti þeirra,...
Meira
1. desember 2009 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sjö óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru sex karlar á aldrinum 17-30 ára og ein kona, 25 ára. Fimm þessara ökumanna voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru jafnframt...
Meira
1. desember 2009 | Ríkislögreglustjórinn
Athugasemd vegna umfjöllunar DV
Vegna umfjöllunar DV í gær um að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki brugðist við peningaþvættistilkynningu árið 2006 með lögreglurannsókn gagnvart nafngreindum manni hefur embættið kannað málið. Niðurstaðan er sú að embættinu barst ekki ...
Meira

2013
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2012
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2011
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2010
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2009
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2008
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2007
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2006
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2005
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2004
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2003
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2002
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2001
Desember
Nóvember
Október
September

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
fyrir að aka yfir gatnamót mót rauðu ljósi er sektin 15.000 krónur og 2 umferðarpunktar í ökuferilskrá ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur