30. apríl 2007 | Selfoss - 33
Rannsókn mannsláts í Hveragerði að ljúka
Bráðabirgðaniðurstaða krufningar mannsins sem lést í Hveragerði s.l. föstudagskvöld er sú að um sjúkdóm, sem valdið hafi mikilli blæðingu, hafi verið að ræða. Rannsókn málsins, sem var mjög ítarleg og fól í sér skýrslutökur af vitnum, ...
Meira
|
|
 |
 |
 |
30. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ökufantar á höfuðborgarsvæðinu
Tuttugu og fimm ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í nokkrum tilvikum var um ofsaakstur að ræða. Á laugardagsmorgun var 22 ára karlmaður stöðvaður á Snorrabraut eftir stutta eftirför. Sá var á bifhjóli sem...
Meira
|
|
 |
 |
 |
30. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þjófar handteknir í Grafarvogi
Árvökulir lögreglumenn af svæðisstöðinni í Grafarvogi handtóku tvo karlmenn á þrítugsaldri fyrir helgina. Þeir síðarnefndu höfðu stolið tösku úr skóla í hverfinu en í henni voru m.a. ferðatölva og sími. Þjófarnir reyndu að malda í móinn en frásagnir...
Meira
|
|
 |
 |
 |
28. apríl 2007 | Selfoss - 33
Rannsókn mannsláts í Hveragerði
Maður sem fannst liggjandi í blóði sínu í húsi í Hveragerði í gær lést á sjúkrahúsi í Reykjavík í gærkvöldi. Í þágu rannsóknar málsins var vettvangi lokað og hann rannsakaður af sérfræðingum tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík en lögregla á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
Afbrotatölfræði í mars
Afbrotatölfræði fyrir marsmánuð er komin á vef Ríkislögreglustjóra www.rls.is/tolfraedi. Í skýrslunni kemur m.a. fram fjöldi helstu brota í mars, hvenær sólarhringsins brotin eru framin og á hvaða dögum.
Skýrsluna má nálgast...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
Athugasemd frá embætti ríkislögreglustjóra
Í grein Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns sem birtist í Fréttablaðinu 19. apríl sl., voru alvarlegar rangfærslur. Það sama á við um viðtal við þingmanninn sem birtist í DV 23. apríl sl. Þessar rangfærslur ber að leiðrétta.
Alþingismaðurinn...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefnamál í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum. Karlmaður um fertugt, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Átján umferðaróhöpp
Átján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þau voru flest minniháttar en í einu tilviki var flutningur á slysadeild. Það var eftir óhapp í miðborginni en eftir hádegi var ekið þar á hjólreiðamann á fimmtugsaldri.
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
Skemmdir á lögreglubifreiðum
Nokkuð hefur borið á því á liðnum misserum að einstaklingar vinni skemmdir á lögreglubifreiðum. Embætti ríkislögreglustjóra lítur slík mál alvarlegum augum. Fyrir nokkru var tekin sú ákvörðun að fela lögmannsstofu að útbúa ítarlegar bótakröfur í...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Karlmaður um tvítugt var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. maí nk. í þágu rannsókna peningafölsunarmála, sem til meðferðar hafa verið hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu.
Rétt er að vekja athygli á að hver sá...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu
Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirði og tveir í Reykjavík en þetta voru allt karlmenn á ýmsum aldri. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sá...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti
Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti en talið er að efnin séu hass, amfetamín og marijúana. Mest var af hassi eða um 100 grömm. Karlmaður og kona voru handtekin og yfirheyrð vegna málsins. Hálffertug kona í annarlegu ástandi var handtekin í...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2007 | Seyðisfjörður - 26
Áróðursstríðið er hafið
Síðast liðinn þriðjudag 24. apríl kom til landsins með ferjunni Norrænu einn af hinum svokölluðu mótmælendum Kárahnjúkavirkjunar. Þurfti lögreglan á Seyðisfirði að birta honum dóm héraðsdóms Austurlands þar sem hann hafði verið dæmdur í 60 daga...
Meira
|
|
 |
 |
 |
25. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vítavert gáleysi ökumanns
Karlmaður um þrítugt var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun en sá ók fólksbifreið með 6 ára barn sér við hlið í framsæti. Hvorki maðurinn né barnið voru með bílbelti. Því miður er þetta ekki einsdæmi þótt öllum megi vera ljóst að svona...
Meira
|
|
 |
 |
 |
25. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þrjú fíkniefnamál
Þrjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kona á þrítugsaldri var handtekin í austurborginni þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli. Í framhaldinu var karlmaður á fertugsaldri færður á lögreglustöð en hann tengdist...
Meira
|
|
 |
 |
 |
25. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Slys á fólki
Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir vinnuslys í Kópavogi í gærmorgun. Maðurinn, sem kvartaði undan eymslum í baki, var að taka steypumót utan af veggjum þegar óhappið varð en hann féll aftur fyrir sig. Fallið var þó ekki mjög...
Meira
|
|
 |
 |
 |
25. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
FBI námskeið
FBI alríkislögregla Bandaríkjanna stóð í síðustu viku fyrir námskeiði fyrir yfirmenn lögreglu á Norðurlöndum. Námskeiðið var haldið í Danmörku. Á námskeiðinu var farið yfir nútímastjórnunarhætti í lögreglu auk þess sem lögð var áhersla á að auka...
Meira
|
|
 |
 |
 |
24. apríl 2007 | Selfoss - 33
Bílþjófur eltur uppi og handtekinn í Ölfusi
Í morgun handtók lögreglan á Selfossi mann á fertugsaldri eftir eftirför sem hófst á Krísuvíkurvegi í Selvogi. Ástæða eftirfararinnar var sú að lögregla var að svipast um eftir sendiferðabifreið sem hafði verið stolið í Keflavík í nótt. Í Selvogi...
Meira
|
|
 |
 |
 |
24. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Umferðaröryggisvika fer vel af stað
Átján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring en það er með minnsta móti. Óhöppin voru nær öll minniháttar og ekki er vitað um nein teljandi meiðsli á fólki. Vera kann að alþjóðleg umferðaröryggisvika...
Meira
|
|
 |
 |
 |
24. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot og þjófnaðir
Sex innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var inn á þrjú heimili í austurborginni og eitt í Breiðholti en mismiklu var stolið. Lyfjum var m.a. stolið á síðastnefnda staðnum en í austurborginni hurfu ferðatölva og...
Meira
|
|
 |
 |
 |
24. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Falsaðir peningaseðlar
Nokkur tilvik þar sem fölsuðum peningaseðlum hefur verið komið í umferð hafa verið tilkynnt til lögreglu að undanförnu. Oftast er um að ræða peningaseðla, sem afgreiðslufólk verslana hefur tekið við, en síðar komið í ljós að reyndust heimagerðir.
Meira
|
|
 |
 |
 |
23. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
17 teknir fyrir ölvunarakstur
Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, átta á laugardag og jafnmargir á sunnudag. Tíu voru teknir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði og þrír í Garðabæ. Þetta voru fimmtán...
Meira
|
|
 |
 |
 |
23. apríl 2007 | Hvolsvöllur - 31
Reiðhjólaskoðun við Hvolsskóla á Hvolsvelli
Lögreglan á Hvolsvelli í samstarfi við Hvolsskóla á Hvolsvelli framkvæmdi hjá nemendum skólans skoðun á reiðhjólum þeirra og fór yfir umferðar- og öryggisreglur sem gilda um þá sem ferðast um á reiðhjólum. Farið var sérstaklega yfir notkun og þær...
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölæði þolanda og geranda
Áfengi kemur gjarnan við sögu í mörgum þeirra mála sem koma til kasta lögreglu og gærdagurinn var engin undantekning í þeim efnum. Karlmaður á miðjum aldri kom á lögreglustöð í gær til að kæra þjófnað á bíl. Þegar betur var að gáð reyndist maðurinn...
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Tjaldað í austurborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð í austurborgina í gærmorgun en þar hafði karlmaður reist tjald og lét fara vel um sig. Maðurinn, sem reyndist vera ferðamaður frá Nýja-Sjálandi, var að elda sér morgunverð þegar lögreglumenn komu á vettvang.
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Tekinn fyrir lyfjaakstur í porti lögreglustöðvarinnar
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn fyrir lyfjaakstur síðdegis í gær. Það sem gerir mál hans fremur sérstakt er vettvangur brotsins en maðurinn var stöðvaður í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Þangað hafði hann komið til að hitta...
Meira
|
|
 |
 |
 |
18. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ekið á tvo drengi
Ekið var á tvo drengi í gær en báðir sluppu með minniháttar meiðsli. Annar var á leið í skóla í Garðabæ en hinn í Hafnarfirði. Báðir drengirnir eru 9 ára en sá á fyrrnefnda staðnum var á reiðhjóli þegar óhappið varð. Hann var með hjálm á höfði og...
Meira
|
|
 |
 |
 |
18. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefni fundust við húsleit
Nokkuð magn af fíkniefnum fundust við húsleit á höfuðborgarsvæðinu í gær. Talið er að þetta séu e-töflur og amfetamín. Ein kona var handtekin vegna málsins. Á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu fannst lítilræði af ætluðu fíkniefni. Karlmaður um fertugt...
Meira
|
|
 |
 |
 |
18. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
Mánaðarskýrslur um afbrot í lögregluumdæmum
Miklar breytingar hafa orðið á embætti ríkislögreglustjóra á síðustu mánuðum sem meðal annars miða að því að styrkja innviði lögreglunnar og auka öryggi borgaranna. Einn liður í þessu er að bæta upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla um þróun...
Meira
|
|
 |
 |
 |
18. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot í Kópavogi
Brotist var inn á tvö heimili í Kópavogi í gær. Á öðrum staðnum stálu þjófarnir m.a. greiðslukorti og fartölvu en einskis var saknað á hinu heimilinu. Svo virðist sem þar hafi komið styggð að þjófunum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú...
Meira
|
|
 |
 |
 |
17. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur í Breiðholti
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu gekk ágætlega fyrir sig í gær þótt 27 umferðaróhöpp væru tilkynnt til lögreglunnar. Þau voru nær öll minniháttar en mestu máli skiptir að ekki er vitað um nein slys á fólki. Lítið bar á hraðakstri en þó eiga þrír...
Meira
|
|
 |
 |
 |
17. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu
Fáein fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Við húsleit í Hafnarfirði fundust fíkniefni sem talið er að séu amfetamín og hass. Karlmaður um þrítugt var yfirheyrður vegna málsins sem er að mestu upplýst.
Meira
|
|
 |
 |
 |
16. apríl 2007 | Seyðisfjörður - 26
Of hraður akstur á Háreksstaðaleið
Seinnipartinn í gær sunnudaginn 15. 04. voru 10 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Háreksstaðaleið. Sá sem hraðast ók var á 130 km. hraða. Voru þeir allir á leið til Egilsstaða. Lögreglumenn frá embættinu á Seyðisfirði munu á næstunni sinna...
Meira
|
|
 |
 |
 |
16. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
21 tekinn fyrir ölvunarakstur
Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu voru stöðvaðir á laugardag og jafnmargir á sunnudag og einn í nótt. Fimmtán voru teknir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi, Garðabæ og á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
16. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrotsþjófar handteknir í austurborginni
Þrír piltar voru handteknir í austurborginni aðfaranótt laugardags en þeir eru grunaðir um innbrot í fyrirtæki. Engu var stolið en öryggiskerfi er í umræddu fyrirtæki og fór það í gang þegar þjófarnir hugðust athafna sig innandyra. Svo virðist sem...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Tveir teknir fyrir ölvunarakstur
Tveir karlmenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í gær og nótt. Sá yngri er um fertugt en hinn er hátt á áttræðisaldri. Þeir voru stöðvaðir í austurborginni og í Hafnarfirði. Karlmaður á fimmtugsaldri var stöðvaður við akstur í Breiðholti og látinn...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hættulegur leikur
Í gærkvöld fengu lögreglumenn í Kópavogi tilkynningu um aðfinnsluvert aksturslag ungs ökumanns. Sá var með tvo hjólabrettamenn í eftirdragi. Aksturinn var stöðvaður samstundis og hjólabrettamönnunum gert að sleppa takinu á bílnum. Þeir sem áttu hlut...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Slys á fólki
Sextán ára piltur fingurbrotnaði í Kópavogi í gærmorgun. Pilturinn og félagi hans, sem er ári eldri, voru að fikta með sprengiefni þegar óhappið varð. Sá slasaði datt þegar hann var að kasta frá sér heimatilbúinni sprengju og við það fingurbrotnaði...
Meira
|
|
 |
 |
 |
12. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kviknaði í kvöldmatnum
Heldur illa tókst til við eldamennskuna á tveimur heimilum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um reyk sem barst frá íbúð fullorðinnar konu í Hlíðahverfi. Þegar að var komið var konan hvergi sjáanleg en hún mun hafa...
Meira
|
|
 |
 |
 |
12. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
20 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu
Tuttugu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Það verður að teljast í minna lagi enda gekk umferðin almennt vel fyrir sig. Óhöppin voru nær öll minniháttar en í einu tilviki kvartaði ökumaður undan eymslum í hálsi.
Meira
|
|
 |
 |
 |
12. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Flugdreki ógnaði flugöryggi
Það er fátítt að lögreglumenn hafi afskipti af fólki með flugdreka en þó gerðist það í þessari viku. Um var að ræða karlmann sem var með flugdreka í Öskjuhlíðinni. Flugdrekinn var svo hátt á lofti að hann truflaði aðflug flugvéla að...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit 9 ára stúlku
Níu ára stúlka var bitin af hundi í Reykjavík í gær. Stúlkan var flutt á slysadeild en sauma þurfti átta spor í framhandlegg hennar. Þess má geta að stúlkan er vön að umgangast hunda en sá sem beit hana er henni alls óviðkomandi. Ekki er ljóst hvað...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Skemmdarverk á höfuðborgarsvæðinu
Nokkur skemmdarverk voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Bíll var skemmdur í Mosfellsbæ en ökutækið hafði oltið deginum áður og því varð eigandinn að skilja það eftir. Þegar hann sneri aftur var búið að vinna frekari skemmdir á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2007 | Ríkislögreglustjórinn
Tilkynning frá embætti ríkislögreglustjóra
Fréttatilkynning Nr. 3/2007
Embætti ríkislögreglustjóra hefur á grundvelli samstarfssamnings við Umferðarstofu f.h. samgönguráðherra falið tilteknum lögregluembættum að hafa samvinnu um sérstaklega aukið umferðareftirlit. Að lokinni sameiningu og...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þrír innbrotsþjófar handteknir
Sextán ára piltur var handtekinn í vesturhluta borgarinnar í gærkvöld en sá var á stolnum bíl. Í bílnum fannst þýfi úr tveimur innbrotum og var því skilað aftur í réttar hendur. Í framhaldinu voru tveir 15 ára piltar handteknir en þeir eru grunaðir...
Meira
|
|
 |
 |
 |
10. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunarakstur um páskana
Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana. Sjö voru stöðvaðir á skírdag, þrír á föstudaginn langa, sex á laugardag, fjórir á páskadag og þrír í gær. Fimmtán voru teknir í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði,...
Meira
|
|
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
7. apríl 2007 | Vestfirðir - 18
Aldrei fór ég suður, fyrri hluti.
Í gærkveldi, kl.19:00, hófst hin árlega rokkhátíð, Aldrei fór ég suður, á Ísafirði. Tónleikarnir stóðu til að verða 01:00 og voru vel sóttir. Segja má að samkoman hafi gengið mjög vel fyrir sig miðað við mannfjöldann, enda voru mótshaldarar,...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fréttir úr umferðinni
Fimmtán umferðaróhöpp hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi en þau voru tuttugu og þrjú á síðasta sólarhring. Nítján ára piltur var tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður á Gullinbrú og í morgun...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sex fíkniefnamál
Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Um miðnætti voru höfð afskipti af þremur karlmönnum á þrítugsaldri en í fórum þeirra allra fundust fíkniefni sem talið er að sé maríjúana. Mennirnir voru...
Meira
|
|
 |
 |
 |
3. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvaður ökumaður með barn sitt í bílnum
Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á leikskólaaldri. Því miður er þetta mál ekki einsdæmi en fyrr í vetur stöðvuðu lögreglumenn konu á svipuðum aldri fyrir...
Meira
|
|
 |
 |
 |
3. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
28 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu
Tuttugu og átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Flest voru þau minniháttar og ekki er vitað um nein alvarleg slys á fólki. Hinsvegar er ljóst að eignatjón er nokkurt. Í sex tilfellum var um afstungu að...
Meira
|
|
 |
 |
 |
2. apríl 2007 | Selfoss - 33
Gjöf vegna kaupa á fíkniefnahundi
Kvenfélag Eyrarbakka gefur 100.000 krónur til kaupa á fíkniefnahundi.
Anna Jónsdóttir formaður og Norma Einarsdóttir ritari Kvenfélags Eyrarbakka afhentu í vikunni Ólafi Helga Kjartanssyni lögreglustjóra á Selfossi 100.000 krónur til kaupa á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
1. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þrír teknir fyrir ölvunarakstur
Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Tveir voru stöðvaðir í miðborginni. Fyrst kona á sextugsaldri en hún var tekin skömmu fyrir miðnætti og klukkan að ganga þrjú var karlmaður á fertugsaldri...
Meira
|
|
 |
 |
 |
1. apríl 2007 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hávaði í heimahúsum
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Margar kvartanir bárust vegna hávaða í heimahúsum og ekki fóru öll partíin vel fram. Ástandið í miðborginni var hins vegar skárra en oft áður en þar voru ekki mjög margir á...
Meira
|
|
 |